Erlent

Loftárás Bandaríkjamanna var mannskæð

Tæplega þrjátíu manns féllu í loftárás Bandaríkjamanna á þorpið Hayo í Sómalíu, í dag, að sögn manns úr nágrannaþorpi. Bandaríkjamenn voru á höttunum eftir mönnum sem þeir telja tilheyra Al Kæda.

Til árásarinnar notuðu þeir þungvopnaða fjögurra hreyfla vél búna fallbyssum og vélbyssum sem geta samtals skotið tíu til fimmtán þúsund skotum á mínútu.

Slíkar vélar eru ekki hentugartil nákvæmnisárása; nokkurra sekúndna skothríð getur drepið allt líf á svæði á stærð við nokkra fótboltavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×