Erlent

Þúsundir verkamanna á flótta

Þúsundir fátækra farandverkamanna hafa flúið Assam hérað á Norðaustur Indlandi, eftir fjöldamorð á félögum þeirra undanfarna daga. Yfir sjötíu hafa verið myrtir.

Illvirkjarnir eru í samtökum sem hafa barist fyrir sjálfstæði Assam í eina þrjá áratugi og myrt þúsundir manna á þeim tíma. Samtökin hótuðu því á dögunum að drepa alla verkamenn sölumenn á útimörkuðum, sem ekki væru innfæddir í héraðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×