Erlent

Réðust inn á ræðismannsskrifstofu

Bandarískir hermenn réðust í morgun inn í ræðismannsskrifstofu Írans borginni Arbil í Írak og handtóku þar fimm starfsmenn. Ekki hafa borist nánari fregnir af þessu og ekki sagt til um ástæðuna. Bæði Bandaríkjamenn og Írakar hafa raunar haldið því fram að Íranar styðji uppreisnarmenn í Írak með ráðum og dáð, og ausi bæði í þá peningum og vopnum, auk þess sem íranskir byssumenn taki þátt í bardögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×