Erlent

Loftárásir mistókust

Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana.

Embættismaðurinn sagði að Sömölum og Eþíópum væri ekki síður í mun að hafa hendur í hári mannanna. Ekki hefur verið upplýst hverjir það voru sem Bandaríkjamenn drápu í loftárásum sínum í Sómalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×