Flugskeyti skotið að bandarísku sendiráði 12. janúar 2007 13:05
Talið er að öfgasinnaðir vinstrimenn hafi verið að verki þegar flugskeyti var skotið að sendiráði Bandaríkjanna í Aþenu í Grikklandi í morgun. Enginn særðist í árásinni. Hús nötruðu þegar flugskeytið rauf morgunkyrrðina og sprakk svo inni á salerni á þriðju hæð sendiráðsins, sem er í miðborg Aþenu. Nokkrar skemmdir urðu á húsinu en til allrar hamingju varð ekkert manntjón í sprengingunni. Nærliggjandi götum var lokað í kjölfarið og tugir lögreglubíla umkringja sendiráðið, sem er rammlega víggirt. Sendiherrann sagðist í samtölum við fjölmiðla líta málið mjög alvarlegum augum og utanríkisráðherra Grikklands, sem kom og skoðaði verksummerki, fordæmdi sömuleiðis árásina. Grísk yfirvöld segjast hafa fengið nafnlaus símtöl í morgun þar sem samtökunum Epanastatikos Aghonas eða Byltingarbaráttunni var kennt um tilræðið. Þau eru skipuð róttækum vinstri mönnum og hafa á undanförnum árum staðið fyrir nokkrum hryðjuverkum í Grikklandi. Meðal annars sýndu þau menningarmálaráðherra landsins banatilræði á síðasta ári. Áratugur er síðan flugskeytum var síðasta skotið að bandaríska sendiráðinu í Aþenu. Þá voru aftur á móti á ferðinni marxísku samtökin 17. nóvember sem stofnuð voru á miðjum áttunda áratugnum til að berjast gegn herforingjastjórninni sem þá stýrði landinu. Þau voru leyst upp árið 2002 en meðan þau voru í fullu fjöri stóðu þau fyrir fjölmörgum hermdarverkum sem kostuðu tugi mannslífa.
Erlent Fréttir Mest lesið Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Slegist með vopnum við skemmtistað Innlent Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Fleiri fréttir Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Sjá meira