Erlent

Spegill spegill herm þú mér

Stefán Karlsson tekur mynd af Stefáni Karlssyni. Hvað finnst ykkur um jakkann hans ?
Stefán Karlsson tekur mynd af Stefáni Karlssyni. Hvað finnst ykkur um jakkann hans ? MYND/Stefán Karlsson
Hönnuður í New York hefur hannað spegil með innrauðri tækni sem sendir videomyndir til farsíma og/eða tvölva hvar sem er í heiminum. Konur (og eftir atvikum karlmenn) geta þannig farið í verslunarferðir með vinkonum sínum, þótt önnur þeirra sé í Lundúnum en hin heima á Íslandi.

Lundúnakonan getur þá mátað föt og sent lifandi myndir af sér til vinkonunnar, sem sendir SMS skilaboð um hvernig henni líst á gallann. Einnig er hægt að nota snertifleti á skjánum til þess að velja skó eða aukahluti við fötin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×