Erlent

Svakaleg sótthreinsun

Bandarískir vísindamenn upplýstu í gær að góð leið til þess að sótthreinsa svampa sem notaðir eru til afþurrkunar, á heimilum, sé að setja þá í örbylgjuofn í tvær mínútur. Það nægi til þess að drepa 99 prósent af öllum bakteríum, vírusum og öðrum óþverra.

Bandarískar fjölskyldur brugðu skjótt við og hófu sótthreinsun í stórum stíl. Því miður láðist mörgum að lesa smáa letrið. Þar sagði nefnilega að það ætti að rennbleyta svampana áður en þeir væru settir í ofninn. Þykkir reykjarbólstrar lágu því yfir bandarískum borgum í gær, þegar heimilissvampar í tonnatali brunnu í örbylgjuofnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×