Erlent

Engin ástæða til þess að myrða Litvinenko -Putin

Alexander Litvinenko.
Alexander Litvinenko. MYND/AP

Forseti Rússlands segir að njósnarinn fyrrverandi Alexander Litvinenko hafi ekki haft neina ástæðu til þess að flýja land. Hann hafi ekki vitað um nein opinber leyndarmál, og engin hætta að honum steðjað. Litvinenko sakaði forsetann um að hafa fyrirskipað morðið á sér.

Á fundi með fréttamönnum sagði Vladimir Putin að Litvinenko hefði verið rekinn úr KGB og sóttur til saka fyrir að misnota aðstöðu sína og stela sprengiefni.

Það hefði hinsvegar ekki verið nein ástæða fyrir hann að flýja og engin ástæða til þess fyrir stjórnvöld að láta myrða hann á þessu stigi málsins. Litvinenko hefði þegar verið búinn að segja allt það illa sem hann vildi, um sit gamla starf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×