Lífið

Sienna svaf hjá Hayden

Sienna sést hér ásamt Guy Pierce, meðleikara sínum í myndinni Factory Girl.
Sienna sést hér ásamt Guy Pierce, meðleikara sínum í myndinni Factory Girl. MYND/Getty Images
Sögusagnir um að Sienna Miller og Hayden Christensen hafi notið ásta fyrir framan myndavélarnar í myndinni „Factory Girl" virðast vera sannar. Dagblaðið New York Daily News sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag.

Blaðið sagði fyrst frá þessu fyrr í vikunni. Sienna neitaði þá að hún hefði notið ásta með Hayden fyrir framan myndavélarnar. Blaðið sagði síðan frá því í dag að eftir að hafa horft vel á myndina, ramma fyrir ramma, væri augljóst að Sienna og Hayden væru ekki að leika.

Þess má geta að þegar Sienna var fyrst spurð út í kynlífssenuna í kvikmyndinni stóð hún við hliðina á foreldrum sínum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.