Erlent

Stóri vinningurinn hans Bills

Bill fór beint og pantaði sér Porche.
Bill fór beint og pantaði sér Porche.
Bill Helko, sem býr í Kaliforníu varð himinlifandi þegar hann vann fyrsta vinning í lottói í heimabæ sínum, enda hljóðaði vinningurinn upp á 412.000 dollara. Til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig hringdi Bill í lottóið og fékk staðfest að hann væri með réttar tölur fyrir fyrsta vinning.

Þvínæst pantaði Bill sér Porche sportbíl, bókaði ferð fyrir fjölskylduna til Hawaii og bauð vinum og vandamönnum í kampavínsveislu á dýrum veitingastað í Hollywood. Allir samglöddust Bill og drukku ótæplega af kampavíni, með sniglum, stórsteikum og öðrum kræsingum.

Svo fór Bill að sækja vinninginn, og mikið rétt hann var með allar réttu tölurnar. Það voru líka 9.097 aðrir vinningshafar. Hlutur Bills af pottinum var 45 dollarar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×