Erlent

Orðinn gagnkynhneigður á ný

Ted Haggard, presturinn sem er nú orðinn gagnkynhneigður á ný.
Ted Haggard, presturinn sem er nú orðinn gagnkynhneigður á ný. MYND/AP
Ted Haggard, bandaríski presturinn sem komst í heimsfréttirnar fyrir þremur mánuðum fyrir að hafa átt í sambandi við karlmann og neytt eiturlyfja, losnaði í dag úr meðferð og segist hann nú vera algjörlega gagnkynhneigður.

Haggard var á stífu þriggja vikna námskeiði sem gerir samkynhneigða karlmenn gagnkynhneigða á ný. Slík námskeið eru ekki óalgeng hjá mörgum trúarhópum í Bandaríkjunum.

Umsjónarmenn Haggard samþykkja einnig að hann sé nú gagnkynhneigður. Þeir hafa þó ráðlagt honum að halda ekki áfram að vinna sem prestur. Haggard ætlar sér því að flytja ásamt konu sinni á ógreindan stað í Bandaríkjunum og fara í fjarnám.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×