Erlent

Eignast börn eða skilja

MYND/Vísir
Stuðningsmenn hjónabanda samkynhneigðra í Washington ríki í Bandaríkjunum ætla sér að leggja fram tillögu um að ef gift fólk eignast ekki börn innan þriggja ára verði hjónabandið ógilt.

Þeir sem standa að baki tillögunni segja að ef hjónaband snúist um að fólk eignist fjölskyldu, megi aðeins þeir sem eignast fjölskyldur vera giftir. Til þess að koma tillögunni á atkvæðaseðil fyrir kosningar í Washington í nóvember þurfa þeir að verða sér úti um 224 þúsund undirskriftir.

Andstæðingar tillögunnar segja þetta enn eina árás á hjónabandið. Stuðningsmenn hennar benda hins vegar á að hún eigi eftir að vekja upp umræður um bannið við hjónaböndum samkynhneigðra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×