Kona lést í skotárás við höfuðstöðvar CNN 3. apríl 2007 21:57
Kona lést þegar hún var skotin til bana við höfuðstöðvar CNN sjónvarpsstöðvarinnar í Atlanta í Bandaríkjunum nú undir kvöld. Konan var starfsmaður Omni Hótelsins sem er hluti af húsaþyrpingu stöðvarinnar. Haft er eftir vitnum á fréttavef CNN að konan hafi verið barnshafandi. Byssumaðurinn er alvarlega slasaður eftir að öryggisvörður CNN skaut hann í höfuðið. Lögreglan segir að málið sé tengt heimiliserjum. Vitni sagðist hafa séð mann draga konu á hárinu á næstu hæð fyrir ofan skotárásina. Maðurinn hafi skipað honum að víkja úr vegi þeirra. Vitnið sótti þá öryggisvörð og sá hinn grunaða fara með konuna niður. Innan við mínútu seinna heyrði hann byssuskot. Atvikið átti sér stað einungis 10 metrum frá fréttastofu CNN. Nokkrir starfsmenn fréttavefsins CNN.com urðu vitni að skotárásinni. Brad Lendon, einn starfsmannanna CNN sagði að maðurinn hefði staðið yfir konunni og skotið hana að minnsta kosti tvisvar. Eftir skotin hafi byssumaðurinn litið í kringum sig og í átt til Brads; “Ég veit ekki hvort hann sá mig, en á þessu augnabliki varð mér ljós alvara málsins. Ég sneri í burtu og reyndi að finna öruggan stað.” Kjarni CNN bygginganna er umkringdur verslunum og veitingastöðum. Fréttastofan var rýmd tímabundið vegna atburðarins. En nokkrir starfsmenn höfðu flúið þegar þeir heyrðu byssuskotin.
Fréttir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira