Viðskipti erlent

Yfirtakan á Sainsbury hangir á bláþræði

Sainsbury.
Sainsbury. Mynd/AFP

Gengi bréfa í bresku verslanakeðjunni Sainsbury féll um fjögur prósent í dag og stendur nú í 538,5 pens á hlut eftir að fréttir bárust af því að tveimur af þremur fjárfestahópum sem standa að yfirtökutilboði í keðjuna hafi farið frá borði. Eftir stendur fjárfestingasjóðurinn CVC Capital, sem hækkaði tilboðið í gær.

Breskir fjölmiðlar segja tilboðið hanga á bláþræði eftir að fjárfestahópurinn hækkaði tilboðið í Sainsbury úr 562 pensum á hlut í 582 pens. Við það fór heildartilboðið í 10,1 milljarð punda, um 1.350 milljarða íslenskra króna. Hækkunin kom til eftir að Sainsbury-fjölskyldan, sem fer með 18 prósenta hlut í verslanakeðjunni og er einn stærsti hluthafi hennar, sagðist ekki líta við tilboði undir 600 pensum á hlut.

Ekki mun hafa verið einhugur innan fjárfestahópsins fyrir hækkuninni og sögðu sjóðirnir TPG, áður Texas Pacific Group, og Blackstone frá því í dag. Um síðustu helgi kvaddi fjárfestingasjóðurinn KKR hópinn en hann ætlar að einbeita sér að yfirtöku á lyfjafyrirtækinu Alliance Boots sem er litlu minni yfirtaka en á Sainsbury.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×