Viðskipti erlent

Google kaupir Doubleclick

Google leitarvefurinn safnar að sér fyrirtækjum
Google leitarvefurinn safnar að sér fyrirtækjum

Google hyggst kaupa netauglýsingafyrirtækið DoubleClick á 3,1 milljarð bandaríkjadala, jafnvirði 203,7 milljarða íslenskra króna, og borga í beinhörðum peningum. Þetta mun vera stærstu fyrirtækjakaup Google hefur gert til þessa en Google keypti afþreyingavefinn YouTube í nóvember í fyrra á 1,65 milljarða dali.

DoubleClick hefur sérhæft sig í auglýsingaborðum með DoubleClick Dart forritinu sínu en fyrirtæki geta keypt aðgang að plássi á borðunum. Meðal fyrirtækja sem kaupa þjónustu af DobleClick eru MTV Networks og Sport Illustrated.Com.

Með kaupunum stefnir Google á að stækka markaðshlutdeild sína á auglýsingamarkaði á netinu, að sögn breska ríkisútvarpsins (BBC). Google hefur gert tilraunir til að færa út kvíarnar og birt auglýsingar í sjónvarpi, útvarpi og farsímum.

Nokkur samkeppni mun hafa verið um Doubleclick en hugbúnaðarrisinn Microsoft, netfyrirtækið Yahoo og afþreyingarisinn Time Warner munu allir hafa verið að íhuga að leggja fram tilboð í fyrirtækið, að sögn BBC.

Stjórnir Google og Doubleclick þurfa að samþykkja kaupin áður en þau ganga í gegn. Gert er ráð fyrir að þeim ljúka fyrir lok þessa árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×