Inter tryggði sér ítalska meistaratitilinn 22. apríl 2007 14:54 Leikmenn Inter fögnuðu ákaft eftir leikinn gegn Siena í dag, enda félagið orðið ítalskur meistari í knattspyrnu. MYND/AFP
Inter tryggði sér í dag ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu með því að leggja Siena af velli í dag. Á sama tíma tapaði Roma fyrir Atalanta sem þýðir að liðið á ekki lengur tölfræðilega möguleika á að ná Inter að stigum. AC Milan steig stórt skref í átt að sæti í forkeppni Meistaradeildarinnar með sínum fjórða sigurleik í röð. Inter hefur haft gríðarlega yfirburði á Ítalíu í vetur og var það í raun aðeins formsatriði fyrir liðið að tryggja sér titilinn endanlega, enda löngu ljóst að Roma þyrfti nánast kraftaverk ef það ætlaði sér að ná Inter að stigum. Það var varnarmaðurinn umdeildi Marco Materazzi sem skoraði bæði mörk Inter í dag og kom annað þeirra úr vítaspyrnu. Inter hefur hlotið 84 stig úr 33 leikjum en Roma er í 2. sæti með 68 stig eftir 33 leiki. Liðið er því afar vel að titlinum komið. Lazio er í þriðja sæti með 57 stig en Milan því fjórða með 56 stig. Milan vann sinn fjórða sigur í röð í gærkvöldi með því að leggja Cagliari á heimavelli. Sex stigum munar nú á Milan og Empoli, sem er í fimmta sæti, þegar aðeins fimm umferðir eru eftir. Brasilíski framherjinn Ronaldo skoraði tvö af mörkum Milan í gær.
Ítalski boltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Tottenham - Coventry | Komast heimamenn af botninum? Fram - ÍA | Heimamenn hafa ekki unnið í fimm leikjum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjá meira