Viðskipti erlent

Mikill samdráttur á bandarískum fasteignamarkaði

Íbúðir til sölu í Bandaríkjunum.
Íbúðir til sölu í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Sala á íbúðum öðrum en nýjum dróst saman um 8,4 prósent á milli mánaða í Bandaríkjunum í mars. Samdrátturinn á íbúðamarkaði í Bandaríkjunum hefur ekki verið meiri í einum mánuði í 18 ár. Á sama tíma hefur sala á nýjum íbúðum ekki verið minni í tæp fjögur ár. Greinendur segja samdráttinn merki um veika stöðu fasteignamarkaðarins vestra.

Fréttaveitan Bloomberg bendir á samdrátturinn á milli ára nemi 11,3 prósentum og bætir við að fasteignamarkaðurinn í Bandaríkjunum hafi verið á hraðri niðurleið það sem af sé árs. Greinendur eru ekki á einu máli um hvort markaðurinn sé á uppleið því vísbendingar séu upp um að staða efnahagsmála sé veikari en áður. Geti því enn verið von á frekari samdrætti.

Sala á íbúðum nam 6,12 milljónum talsins í mars miðað við 6,68 milljónir í febrúar, samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fasteignasala í Bandaríkjunum.

Bloomberg segir að veðurfar eigi einhverja sök á samdrættinum. En meiru skipti af eigendur fasteigna eru tregir til að lækka verð á eignum sínum til að liðka fyrir sölunni. Því séu líkur á að fjölmargar íbúðir eigi enn eftir að koma á markaðinn vestra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×