Viðskipti erlent

2.200 prósenta verðbólga í Zimbabve

Robert Mugabe, forseti Zimbabve.
Robert Mugabe, forseti Zimbabve.

Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabve jókst um 500 prósent á milli mánaða og mældist 2.200 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur aldrei nokkru sinni í sögu nokkurs lands mælst hærri. Ríkisstjórn landsins vann að því í lengstu lög að fresta birtingu verðbólgutalna mánaðarins á meðan landsmenn fögnuðu 27 ára sjálfstæðisafmæli.

Efnahagur Afríkuríkisins hefur verið í molum í talsverðan tíma og fer hríðversnandi. Um 80 prósent landsmanna lifa undir fátæktarmörkum og eyða þeir öllum þeim fjármunum sem þeir fá í hendur eins fljótt og auðið er til að varna því að peningarnir brenna upp í verðbólgunni, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.

Verðbólgutölurnar nú eru 200 prósentum meiri en gert hafði verið ráð fyrir áður en tölurnar voru birtar.

Svo slæmt er ástandið að sjálfur Gideon Gono, seðlabankastjóri Afríkuríkisins, hefur sagt að landið þjáist af efnahagslegu alnæmi, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.

Gert er ráð fyrir að staða efnahagsmála eigi eftir að hríðversna á árinu og reiknað með að verðbólgan fari í 5.000 prósent fyrir lok þessa árs bregðist Robert Mugabe, forseti landsins, ekki við, að sögn BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×