Viðskipti erlent

Fyrirtækjasögu Yukos lýkur í dag

Höfuðstöðvar Yukos í Moskvu í Rússlandi. Þessi síðasta eign fyrirtækisins verður boðin upp í dag.
Höfuðstöðvar Yukos í Moskvu í Rússlandi. Þessi síðasta eign fyrirtækisins verður boðin upp í dag. Mynd/AFP

Höfuðstöðvar rússneska olíufyrirtækisins Yukos í Moskvu verða boðnar upp í dag til greiðslu risaskattaskuldar við rússneska ríkið. Þetta er síðasta eign orkufyrirtækisins og markar endalok eins stærsta olíufélags Rússa í einkaeigu sem var úrskurðað gjaldþrota í fyrra.

Skattaskuld Yukos nemur jafnvirði 26 milljörðum bandaríkjadala, 1.666 milljörðum íslenskra króna.

Rússneska olíufélagið Rosneft, sem er að stórum hluta í eigu rússenska ríkisins, keypti síðustu eigur, tæki og framleiðsluréttindi Yukos á uppboði í gær fyrir 165,5 milljarða rúblur, jafnvirði rúmra 411 milljarða íslenskra króna. Með kaupunum hefur Rosneft náð ráðandi stöðu á rússneskum orkugeira og á rúm 40 prósent af olíuframleiðslu í landinu.

Forsvarsmenn Yukos hafa löngum lýst því yfir að skattaskuld fyrirtækisins sé baktjaldamakk stjórnvalda sem hafi litið fyrirtækið hornauga. Fyrrum forstjóri þess, Mikhail Khodorkovsky, var dæmdur vegna fjár- og skattsvika í forstjórastóli fyrirtækisins og situr nú af sér átta ára dóm í Síberíu.

Nikolai Lashkevich, talsmaður Yukos, sagði að með uppboðunum muni fyrirtækinu takast að greiða allar skattaskuldir að fullu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×