Erlent

Bush á ferð og flugi

Guðjón Helgason skrifar

Mótmælendur létu hátt í sér heyra á götum Rómarborgar í dag. George Bush Bandaríkjaforseti sótti borgina heim og var allt annað en velkominn. Forsetinn er á ferð og flugi um Evrópu þessa dagana og ræðir eldflaugavarnarkerfi og Kósóvódeiluna.

Bush virðist ekki tekið opnum örmum alls staðar þar sem hann stígur niður fæti á Evrópuferð sinni. Íbúar í Róm vilja hann ekki í heimsókn og létu það berlega í ljós í dag.

Bush kom til Rómar í gærkvöldi og í morgun hittu hann og Laura kona hans Napolitano forseta Ítalíu og frú, og síðan Benedikt páfa sextánda. Eftir hádegi fundaði Bush með Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Ýmislegt var rætt en þó ekki fangaflug eða leynifangelsi, þrátt fyrir skýrslu Evrópuráðsins þar um frá í gær og að réttarhöld væru hafi í Mílanó gegn Bandaríkjamönnum og Ítölum sem sakaðir eru um að hafa rænt múslimaklerk á Ítalíu og sent til Egyptalands þar sem hann sætti pyntingum.

Kósóvódeilan var hins vegar til umræðu og sagði forsetinn að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði nú að fylgja áætlun sem felur í sér að héraðinu verði veitt sjálfstæði - og það þrátt fyrir andstöðu Rússa. Ekki tókst samkomulag í málinu á nýliðnum fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims.

Eldflaugavarnarkerfið umdeilda var ekki áberandi í umræðunni á Ítalíu en það var megin málið í Póllandi í gær þar sem Bush ræddi við Lech Kaczynski. Hugmyndir eru uppi um að koma fyrir hluta kerfisins í Póllandi.

Pútín Rússlandsforseti vill ekki að kerfið verið að veruleika. Á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims í Heiligendamm í Þýskalandi á fimmutdaginn bauð hann Bush radarkerfi í Aserbaísjan, sem Rússar leigja, fremur en að nýja kerfið yrði að veruleika. Bush gaf lítið fyrir það en sagði að samráð yrði haft.

Rússum virðist hafa sárnað fundur Bush og Kaczynskis í gær. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, sagði nýja kerfið óþarft fyrst tilboð Rússa hefði komið fram. Lavorv sagði að ef Bandaríkjamenn héldu áformum sínum til streitu gæti það flækt samvinnu í kjarnorkudeilunni við Írana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×