Erlent

Reyndu að kaupa samning Beckhams af LA Galaxy

Beckham eftir leik Real Madrid og Real Zaragoza um helgina.
Beckham eftir leik Real Madrid og Real Zaragoza um helgina. MYND/AFP

LA Galaxy og fulltrúar Davids Beckham höfnuðu í dag tilboði Real Madrid um að kaupa upp samning Beckham við LA Galaxy. Real hafði samband í gærkvöldi en var síðan sagt í dag „kurteislega en ákveðið" að það væri enginn möguleiki á því Beckham myndi snúast hugur.

Spænsku risarnir héldu að það væri lausnarákvæði í samningi Beckhams við LA Galaxy en þeim var sagt að svo væri ekki. „Ekkert hefur breyst. Við getum ekki beðið eftir því að Beckham komi til okkar." sagði framkvæmdastjóri LA Galaxy, Alexi Lalas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×