Erlent

Kabúl: 35 létust í tilræði á lögreglurútu

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
MYND/AFP
Sprengja grandaði 35 manns og særði fjölda til viðbótar í lögreglurútu í Kabúl höfuðborg Afghanistan í morgun. Rútan var við höfuðstöðvar lögreglunnar í miðborginni á annatíma þegar sprengjan sprakk. Flestir hinnar látnu eru nýliðar eða kennarar í lögregluskólanum. Þetta er mesta mannfall í sprengju síðan Talibanar voru hraktir frá völdum árið 2001. Samkvæmt fréttum BBC hafa þeir lýst tilræðinu á hendur sér, en þetta er fimmta sprengjan á þeirra vegum á þremur dögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×