Erlent

Miðborg Melbourne lokað vegna skotmanns

Lögreglan í Melbourne í Ástralíu hefur lokað miðborginnni þar sem hún leitar að manni sem hóf skothríð á vinsælli verslunargötu í morgun. Maðurinn réðist að ungri konu og þegar tveir vegfarendur komu henni til varnar skaut hann á þau þrjú.

Vopnaðir lögreglumenn leita árásarmannsins með aðstoð þyrlna. Íbúum hefur verið sagt að halda sig innan dyra og viðskiptavinir sem voru inni í verslunum þurfa að vera þar uns lögregla hleypir þeim út á ný.

Lögregla telur að skotmaðurinn hafi þekkt konuna. Hann kom með hana út úr verslun og hélt í hár hennar. Hún reyndi að komast undan og dreif þá að tvo karlmenn sem ætluðu að aðstoða hana. Hóf maðurinn þá skothríð sína. Svo virðist sem konan hafi látið lífið en karlmennirnir tveir sem komu henni til aðstoðar fengu báðir sár á brjóstkassa og eru í alvarlegu ástandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×