Erlent

Moskva dýrasta borg í heimi

Moskva, höfuðborg Rússlands, er dýrasta borg í heimi að búa í. Borgin hlýtur þennan heiður annað árið í röð. Lundúnir, höfuðborg Bretlands, fylgir fast á hæla hennar. Þetta kom fram í skýrslu ráðgjafafyrirtækis sem gefin var út í morgun.

Sex evrópskar borgir voru á topp tíu listanum og fjórar asískar. New York var dýrasta borgin í Bandaríkjunum en komst einungis í fimmtánda sæti í heiminum. Kaupmannahöfn komst í sjötta sæti listans en það gefur til kynna að Reykjavík myndi verða ansi ofarlega en hún er ekki með í skýrslunni.

Hægt er að sjá skýrsluna og 50 dýrustu borgirnar hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×