Erlent

Fjórir létust í flóði í Texas

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Fjórir létust í Gainesville í Texas í gær þegar flæddi yfir bæinn. Tilkynnt hefur verið um nokkra sem eru týndir. Fjöldi fólks beið á þökum húsa sinna eftir hjálp. Þrjár þyrlur voru notaðar við björgunaraðgerðirnar.

Á meðal hinna látnu var kona, ein fjögurra ára stelpa, ein fimm ára stelpa og amma hennar. Tveggja ára systur fimm ára stelpurnar er saknað. Gainesville er tæplega 100 km frá Dallas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×