Erlent

Hæstiréttur í Kúveit breytir dauðadómi

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages
Hæstiréttur í Kúveit hefur breytt dauðadómi yfir fjórum málaliðum, sem tengdir eru Al Quaeda, í lífstíðardóm. Um leið voru staðfestir lífstíðardómar yfir tveimur öðrum mönnum sem tengdir eru Al Qaeda.

Mennirnir fjórir höfðu áfrýjað dauðadóm sem þeir fengu í glæpadómstól fyrir blóðugar árásir. Áfrýjunardómstóll hafði staðfest þann dóm en nú hefur hæstiréttur breytt honum í lífstíðardóm. Mennirnir voru dæmdir fyrir árás á lögreglu þar sem fjórir lögreglumenn létu lífið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×