Erlent

Kornabarn finnst skammt frá heimili barnshafandi konu sem er saknað

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Nýfætt stúlkubarn fannst á tröppum við hús í aðeins 70 km fjarlægð frá heimili barnshafandi konu sem hefur verið saknað síðan síðastliðinn miðvikudag í Ohio. Læknar staðfesta að barnið hafa fæðst innan við 24 tímum áður en það fannst og hafði naflastrengurinn ekki verið fjarlægður.

 

Erfðasýni hefur verið tekið til að athuga möguleikann á því hvort að stelpan gæti verið dóttir Jessie Davis, 26 ára konu sem hefur nú verið saknað í viku. Lögreglan hefur engan grunaðan um að hafa brottnumið konuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×