Erlent

Lögregla í Englandi leitar að barni

Lögreglan í Mið-Englandi hóf í morgun umfangsmikla leit að níu ára dreng eftir að fregnir bárust af því að honum hefði verið rænt. Engir foreldrar hafa  þó gefið sig fram við lögreglu og sagt að þeir sakni barns síns. Lögreglunni var sagt að illa útlítandi maður á fimmtugsaldri hefði sést ýta níu ára dreng inn í bíl Redditch í gærkvöldi og því hófst leitin. Lögreglan gengur nú hús úr húsi og leitar einnig með aðstoð hunda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×