Erlent

Ákærður fyrir barnaníð

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Maður sem hefur unnið mikið í nágrenni grunnskólans Orange Street í Bandaríkjunum, Dale Hutchings, hefur verið ákærður fyrir að misnota sjö börn. Maðurinn er talinn hafa misnotað börnin samtals yfir þúsund sinnum. Öll börnin voru undir 13 ára þegar misnotkunin byrjaði. Misnotkunin stóð yfir frá 1998-2007.

Lögreglan byrjaði að rannsaka Hutchings þegar 11 ára stelpa sakaði hann um að hafa lætt höndinni inn undir nærbuxur hennar. Rannsókn lögreglu leiddi til þess að fleiri fórnarlömb mannsins gáfu sig fram. Ein stúlkan, 18 ára gömul, segir Hutchings hafa misnotað sig oftar en 300 sinnum á aldrinum 12 - 15 ára. Lögreglan fann heimagerð myndbönd á heimili mannsins við húsleit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×