Erlent

46 stiga hiti í Grikklandi

Stjórnvöld í Grikklandi búast nú við hinu versta en búist er við allt að 46 stiga hita í landinu í dag og á næstu dögum. Júní verður þar með heitasti mánuður í landinu síðan mælingar hófust. Neyðarþjónustur eru í viðbragðsstöðu og búist er við því að rafmagnsleysi eigi eftir að hrjá hluta landsmanna.

Þá hafa stjórnvöld beint því til landsmanna að halda sig frá sólskini og vera ekki á ferðalagi að óþörfu. Þá var fólki ráðlagt að slökkva á heimilistækjum sem notast við mikið af rafmagni til þess að koma í veg fyrir hugsanlegt rafmagnsleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×