Erlent

Ákærður fyrir morð á barnshafandi kærustu sinni

Bobby Cutts. NordicPhotos/GettyImages

Bandarískur lögreglumaður, Bobby Cutts, verður færður fyrir rétt í dag og formlega ákærður um að hafa myrt barnshafandi kærustu sína.

Kærastan, Jesse Davis, fannst látin á laugardag en ýmislegt þykir benda til að hún hafi verið myrt á heimili sínu, þar sem tveggja ára sonur hennar og Cutts fannst yfirgefinn 15. júní.

Cutts, sem er lögreglumaður í Canton, Ohio, tók hann virkan þátt í leitinni að Davis en hélt fram sakleysi sínu. Nágrannakona hans og fyrrum bekkjarsystir hefur einnig verið handtekin. Talið er að hún verði ákærð fyrir að hafa hjálpað Cutts að fjarlægja líkið.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Davis var komin níu mánuði á leið þegar hún hvarf af heimili sínu. Þegar lögregla kom þar að var tveggja ára sonur hennar og Cutts á staðnum í reiðileysi, húsgögnum hafði verið velt um koll og bleikiefni verið helt á gólfi.

Lík Davis fannst í almenningsgarði. Talið er að Cutts verði ákærður fyrir tvö morð, á kærustu sinni og ófæddu barni hennar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×