Erlent

Paris Hilton laus úr steininum

Paris Hilton var sleppt úr fangelsi undir morgun að íslenskum tíma eftir þriggja vikna dvöl í kvennafangelsi í Lynwood í Kaliforníu. Gífurleg mergð ljósmyndara beið þess að Hilton gengi út úr fangelsinu. Hún sat inni fyrir að rjúfa skilorð vegna umferðarlagabrots.

Henni var sleppt úr fangelsi af heilsufarsástæðum og sett í stofufangelsi en dómari skipaði henni að sitja refsinguna af sér í fangelsi. Hilton var brosandi og veifaði til ljósmyndara og fréttamanna á leið sinni að bíl þar sem móðir hennar tók á móti henni.

Paris er talin hafa misst um fimm kíló á meðan hún sat inni. Mikið fjölmiðlafár var í kringum dóminn og þegar hún var færð öðru sinni grátandi í fangelsið.

Paris er talin hafa misst um fimm kíló á meðan hún sat inni. Mikið fjölmiðlafár var í kringum dóminn og þegar hún var færð öðru sinni grátandi í fangelsið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×