Candover býður í Stork 26. júní 2007 09:29
Breski fjárfestingasjóðurinn Candover hefur gert formlegt yfirtökutilboð upp á 1,5 milljarða evrur, jafnvirði 125,5 milljarða íslenskra króna, í hollensku samsteypuna Stork. Tilboðið hljóðar upp á 47 evrur á hlut sem er 19 prósentum yfir meðallokagengi bréfa í Stork síðastliðna þrjá mánuði. Bandarísku fjárfestingasjóðirnir Centaurus Capital og Paulsons, sem fara með 33 prósenta hlut í Stork, styðja tilboðið. Marel á 11 prósenta hlut í Stork í gegnum hollenska félagið LME Holding en að því standa sömuleiðis Eyrir Invest og Landsbankinn. Marel hefur sóst eftir því að kaupa matvælavinnsluvélahluta Stork í allnokkurn tíma. Gangi tilboðið eftir mun Stork verða afskráð af markaði Euronext í Amsterdam, að sögn breska blaðsins Financial Times.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Viðskipti innlent Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Viðskipti erlent Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Viðskipti innlent Sorpa undirbýr sig fyrir þjónustufall Neytendur Strætómiðinn dýrari Neytendur Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Viðskipti innlent „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ Atvinnulíf Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Viðskipti erlent Sjónvarpskóngur allur Viðskipti erlent Fleiri fréttir Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjónvarpskóngur allur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Sjá meira