Erlent

Brown kominn í Downingstræti

Jónas Haraldsson skrifar
Gordon Brown kemur út af fundi með drottningunni í Buckinghamhöll.
Gordon Brown kemur út af fundi með drottningunni í Buckinghamhöll. MYND/AP

Gordon Brown kominn í Downingstræti frá Buckingham höll þar sem hann var skipaður forsætisráðherra. Hann fór á fund Elísabetar annarrar, Englandsdrottningar, núna eftir hádegið og þáði  starfið formlega úr hendi hennar.

Blair sagði í síðasta fyrirspurnartíma sínum á breska þinginu í dag að tveggja ríkja lausn fyrir Ísrael og Palestínu verði að fá forgang umfram allt annað. Búist er við því að hann verði skipaður sérstakur erindreki Fjórveldanna síðar í dag en þau tilkynntu rétt í þessu að sátt hefði náðst um hver yrði erindreki og hver það yrði myndi verða tilkynnt síðar í dag.

Blair sagði sitt hlutverk, þegar og ef hann fær hlutverk erindreka, að ná sátt í alþjóðasamfélaginu um hvað skuli gera í málefnum Ísraels og Palestínu. Hann sagði þetta vera mögulegt en ef árangur ætti að nást þyrfti mikla einbeitingu og enn meiri vinnu.

Þegar Blair yfigaf þingsal í síðasta sinn kvaddi þingheimur hann með dynjandi lófaklappi. Hann hafði áður hnykkt út með eftirfarandi setningu, „I wish all good luck, friend or foe, and that is that. The end," Hann hvarf síðan á braut til Buckinghamhallar þar sem hann sagði síðan af sér.

Brown tekur við í dag

Gordon Brown er nú á leið til fundar við Englandsdrottningu til þess að taka við embætti sem forsætisráðherra Bretlands.

Blair yfirgaf Downingsstræti 10 fyrir fullt og allt að loknum síðasta fyrirspurnatíma sínum í dag. Búist er við að hann tilkynni einnig að hann hætti sem þingmaður Verkamannaflokksins.

Talið er að Brown byrji á því að stokka upp í ríkisstjórninni og útnefni nýjan fjármalaráðherra og einnig nýjan innanríkisráðherra. Samkvæmt fréttavef BBC er líklegt að iðnaðarráðherrann Alistair Darling sem er náinn bandamaður Browns verði skipaður næsti fjármálaráðherra. John Reid innanríkisráðherra mun segja af sér.Búist er við að frekari uppstokkun ríkisstjórnarinnar verði ljós á fimmtudag.

Brown sem hefur verið fjármálaráðherra frá því að Blair varð forsætisráðherra 1997 hefur sagt að menntun og húsnæðismál verði aðaláherslur hans. Úrbætur á heilbrigðiskerfinu hljóta þó forgang á allt annað.

Smellið hér til þess að fylgjast með atburðarásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×