Erlent

Indónesískum flugfélögum bannað að fljúga í Evrópu

Öllum indónesískum flugfélögum hefur verið bannað að fljúga til Evrópusambandsins frá og með næstu viku. Ekkert indónesískt flugfélag flýgur um þessar mundir til Evrópu svo að bannið er frekar viðvörun en nokkuð annað.

Þegnum Evrópusambandsins hefur því verið ráðlagt að fara ekki með flugfélögum frá landinu þar sem öryggi er stórlega ábótavant. Þá var flugfélögum frá Angóla, Rússlandi, Búlgaríu og Moldavíu bannað að fljúga innan Evrópu útaf öryggisástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×