Erlent

Um 100 börn lentu í sjónum við strendur Dublinar

Meira en 100 börnum hefur verið bjargað eftir að siglingarkeppni við strendur Dublinar breyttist í martröð. Öflug vindhviða varð til þess að 91 bát hvolfdi. Um 100 börn sem tóku þátt í keppninni lentu við það í sjónum.

Upphaflega var talið að 20 barna væri saknað en írska strandgæslan greindi síðar frá því að öllum hafi verið bjargað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×