Fótbolti

Veigar Páll fær afburðadóma í Noregi

Veigar Páll Gunnarsson hefur skorað níu mörk í norsku úrvalsdeildinni í sumar.
Veigar Páll Gunnarsson hefur skorað níu mörk í norsku úrvalsdeildinni í sumar. Mynd/Scanpix

Veigar Páll fór mikinn með Stabæk í norsku úrvalsdeildinni um helgina. Hann skoraði þrennu í 5-1 sigri liðsins á Odd Grenland og fékk afburðadóma fyrir í norsku pressunni.

Blaðamaður Aftonbladet gaf Veigari Páli níu í einkunn sem er afar sjaldséð einkunn. Hann fékk átta hjá Verdens Gang og Dagbladet, en sjö hjá Nettavisen.

Enginn Íslendingur í norska boltanum hefur fengið jafnháar einkunnir fyrir frammistöðu í einum leik í sumar.

Alls komu tíu Íslendingar við sögu í leikjum 20. umferðar norsku úrvalsdeildarinnar og voru hinir níu talsvert langt frá Veigari Páli.

Næstbestu einkunnirnar fékk Kristján Örn Sigurðsson, leikmaður Brann. Hann fékk 5,5 í meðaleinkunn.

Lægstur var Ármann Smári Björnsson, einnig hjá Brann. Hann fékk 3 í meðaleinkunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×