Emil meðal bestu nýliða á Ítalíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2007 13:22 Emil er hér á fullri ferð í leik með Reggina. Nordic Photos / Getty Images
Gazetta dello Sport, stærsta íþróttarit Ítalíu, hefur útnefnt Emil Hallfreðsson, leikmann Reggina, sem einn af ellefu bestu nýliðum ítölsku úrvalsdeildarinnar. Emil gekk í sumar til liðs við Reggina frá Lyn í Noregi en þar áður lék Emil með Tottenham þar sem hann fékk að vísu engin tækifæri. Hann hefur spilað alla leiki Reggina til þessa á tímabilinu og fengið góða dóma fyrir. Emil er í sjöunda sæti í einkunnagjöf blaðsins yfir þá 161 leikmann sem ítölsku úrvalsdeildarliðin keyptu í sumar. Úrvalslið bestu nýliðanna er þannig skipað samkvæmt leikkerfinu 4-3-3: Mark: Polito (Catania). Vörn: Rubin (Torino), Loria (Siena), Juan (Roma), Chivu (Inter). Miðja: Foggia (Cagliari), Emil Hallfreðsson (Reggina), Hamsik (Napoli). Sókn: Boriello (Genoa), Iaquinta (Juventus), Lavezzi (Napoli). Blaðið lét einnig fylgja úrvalslið lélegustu leikmannanna, hin svokölluðu „flopp": Mark: Muslera (Lazio). Vörn: Scaloni (Lazio), Natali (Torino), Criscito (Juventus), Stadsgaard (Reggina). Miðja: Tiago (Juventus), Meghni (Lazio), Zenoni (Parma). Sókn: Tullberg (Reggina), Tristan (Livorno), Bjelanovic (Torino). Á þessu má sjá að Danirnir sem gengu til liðs við Reggina fyrir tímabilið, þeir Kris Stadsgaard og Mike Tullberg, hafa ekki þótt standa sig eins vel og Emil. Stadsgaard kom frá Nordsjælland og Tullberg frá AGF.
Ítalski boltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Tottenham - Coventry | Komast heimamenn af botninum? Fram - ÍA | Heimamenn hafa ekki unnið í fimm leikjum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjá meira