Fótbolti

Hrakfarir AC Milan halda áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alberto Gilardino var ekki á skotskónum í dag.
Alberto Gilardino var ekki á skotskónum í dag.

AC Milan tapaði í dag fyrir Empoli á heimavelli, 1-0. Liðið hefur aðeins unnið tvo leiki til þessa á tímabilinu og situr í 11. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Luca Saudati skoraði eina mark leiksins á 55. mínútu.

Fiorentina kom sér upp í annað sæti deildarinnar með 3-0 sigri á Siena. Giampaolo Pazzini, Adrian Mutu og Christian Vieri skoruðu mörk Fiorentina en sá síðastnefndi kom inn á sem varamaður í leiknum.

Juventus getur endurheimt annað sæti deildarinnar með sigri á Genoa í kvöld.

Úrslit annarra leikja:

Atalanta - Torino 2-2

Cagliari - Catania 1-1

Livorno - Lazio 0-1

Sampdoria - Parma 3-0

Udinese - Palermo




Fleiri fréttir

Sjá meira


×