
Stríð og friður
Þetta fjarlæga sólkerfi er samt plánetan Jörð og stríðið er bara háð í einum skika þeirrar sömu jarðar. Stríðið hefur nú verið háð í nær 1.900 daga. Tíu daga stríðsrekstur kostar jafn mikið og eins árs framlög Bandaríkjamanna til Afríku. Það hefði verið hægt að tvöfalda framlögin til Afríku í nær 200 ár fyrir hlut Bandaríkjamanna í stríðinu. Þá er ótalinn hlutur annarra ríkja, sem Stiglitz og Blimes meta til jafnvirðis. Þar bera Bretar meginþunga.
Að mati hagfræðingsins væri hægt að veita 530 milljónum barna heilsugæslu í eitt ár fyrir einn þriðja af heildarkostnaði Bandaríkjanna eins og hann stendur í dag. Eru þó ótaldir vextir af lánum sem tekin hafa verið til að fjármagna þessa herför, en hún er öll tekin út á krít fyrir komandi kynslóðir. Þetta er munurinn á kostnaðinum við stríð og ávinningnum af friði. Eins og hann er mældur í peningum.
Gegn betri vitundFyrir rúmu ári skrifaði Tony Blair, þáveradi forsætisráðherra Breta, grein í tímaritið Foreign Affairs sem átti að réttlæta stríðin í Afganistan og Írak. Tilefnið var fjögur ár frá upphafi stríðsins sem nú er fimm ára, löngu eftir að lýst var yfir sigri. Í greininni segir Blair stríðin snúast um baráttuna milli „okkar gilda" og „þeirra gilda". Þeir eru hryðjuverkamennirnir sem vaða uppi í heiminum.
Í greiningu á röksemdafærslu Blairs sem ég birti á vef mínum - stefanjon.is - benti ég á ýmsa veikleika í rökum Blairs, en helstan þann að hann trúir í raun ekki á þá leið sem hann þó sjálfur kaus að fara í félagsskap við Bush. Hann hefur nefnilega rétt fyrir sér í meginatriðinu. Baráttan fyrir lýðræði, frelsi og mannréttindum má ekki tapast. Og leiðin til þess er einmitt ekki sú sem hann fór, heldur hin sem hann bendir á: Að sýna í verki að „okkar leið" sé betri en „þeirra". Blair segir: „Ef við trúum á réttlæti, hvernig getum við liðið að 30.000 börn deyi daglega, þegar við vitum að hægt er að koma í veg fyrir það?" Og með því að koma á friði í Palestínu væri hægt að sýna fram á í reynd að ólík trúarbrögð og ólíkir menningarheimar geta búið í sátt. Það væri að mati Blairs sýnikennsla í því að „okkar gildi" duga best.
Í Afríku þarf að berjast gegn fátækt, hungri, sjúkdómum og stríði með því að auka aðstoð, segir hann. Og alþjóðlegt samkomuleg um verslun þarf að hjálpa Þriðja heiminum til bjargálna, með því til dæmis, að verndarstefna Evrópu verði aflögð. Aðgerðir gegn loftslagsbreytingum eru líka hluti af þeirri „hnattrænu íhlutun" sem Tony Blair boðar og trúir á. Í þeim efnum dugar ekkert nema það „hnattræna bandalag" sem hann kallar eftir.
Réttilega varar hann við því að einangrunarhyggja verði ofan á í Vesturheimi. Þar eru hann og mannúðarsamtökin bresku Oxfam sammála.
Í einni skýrslu Oxfam er einmitt rakið hvernig aðgerðir Breta og Bandaríkjamanna í Afganistan og Írak kunni að leiða af sér pólitískt bakslag. Aðgerðarleysi á öllum þeim sviðum sem Blair vill taka á af „stórhug" verði í raun niðurstaðan af stríðinu. Það væri þá tap af þeim toga sem heimsbyggðin þyldi illa og gerði kostnaðinn af stríðinu enn meiri en hagfræðingar geta mælt.
Hinn sanni kostnaður„Hinn sanni kostnaður stríðsins", eins og Stiglitz og Bilmes kalla bókina, felur í sér eftirfarandi fróðleik:
16 milljarðar dollara: mánaðar stríðsrekstur í Írak.
138 dalir: Mánaðarlegur kostnaður á hvert heimili í Bandaríkjunum.
25 milljarðar dollara: kostnaður Bandaríkjanna á ári vegna hækkunar á olíuverði, sem rekja má til stríðsins.
5 milljarðar: 10 daga stríð.
Milljón milljónir: Vextir sem greiðast af stríðslánum næstu 10 ár.
3%: Meðaltekjutap í 13 Afríkulöndum vegna hærra olíuverðs sem rekja má til stríðsins, þetta tekjufall eitt nægir til að þurrka upp þróunaraðstoð í álfunni á einu ári.
En þetta er bara reiknilíkan. Mannlegar hörmungar eru ekki taldar með. Og því til viðbótar kemur svo áfallið fyrir „okkar gildi".
Hvað segir stríðið og kostnaðurinn af því um gildismat „okkar" sem trúum á friðsamlegar lausnir, mannréttindi og lýðræði? Allt hefur þetta verið fótum troðið af „okkur" sjálfum í fimm ár og talning stendur yfir enn.
@Megin-Ol umraedugr 8,3p 1.m :
Höfundur starfar fyrir Þróunarsamvinnustofnun í Namibíu.
Skoðun

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar