Skoðun

Bætur fyrir lög­reglu­að­gerðir lítið kynntar

Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Á Íslandi er sterkur réttur til skaðabóta ef saklaus maður er handtekinn eða beittur öðrum lögregluaðgerðum. Nánar tiltekið á maður almennt séð rétt á skaðabótum frá íslenska ríkinu ef maður er beittur t.d. handtöku, líkamsleit, líkamsrannsókn, húsleit, leit í bíl eða símhlustun, en lögreglumálið síðan fellt niður eða maður sýknaður, og ekki er sýnt fram á að maður hafi sjálfur valdið aðgerðinni.

Þröskuldurinn til að sækja bætur samkvæmt þessum reglum er lægri heldur en í venjulegum skaðabótamálum því bótarétturinn er ekki háður því að sýnt sé fram á sök einhvers. Maður þarf þannig ekki að sanna að lögreglumenn, sem komu að aðgerðinni, hafi gert neitt rangt í sjálfu sér. Þeir kunna að hafa gert það sem þeir töldu réttast miðað við aðstæður. Samt á maður rétt á bótum frá ríkinu, svo lengi sem skilyrði sakamálalaga eru uppfyllt, þ.e. þá aðallega að málið hafi verið fellt niður eða maður fundinn saklaus og að maður hafi ekki valdið aðgerðinni sjálfur.

Annað mikilvægt í þessu sambandi er að um þessi bótamál gildir lögbundin gjafsókn sem þýðir að yfirleitt þarf einstaklingurinn ekki að borga lögfræðikostnað af málinu. Reyndar hefur dómsmálaráðuneytið því miður haft til skoðunar að afnema þennan mikilvæga rétt til gjafsóknar en hann er þó enn til staðar. Fjöldi svona mála fer heldur aldrei fyrir dóm, heldur ná tjónþolar með aðstoð lögmanna oftar en ekki sátt við ríkið sem í framhaldinu greiðir skaðabætur og málskostnað.

Fjöldi einstaklinga eignast skaðabótarétt með þessum hætti á hverju ári, enda gerist það oft að aðgerðir lögreglu leiða ekki til saksóknar og mál eru felld niður. Merkilegt er hins vegar að þó þessar bótareglur hafi verið með núverandi sniði í lögum í næstum 20 ár, þá hefur íslenska ríkið gert mjög lítið til að kynna þær fyrir almenningi. Það má því ætla að margir eigi eða hafi átt bótarétt án þess að vita nokkuð um það.

Á vefsíðunni island.is eru t.d. litlar sem engar upplýsingar um þessar bótareglur. Þar er síða sem nefnd er Upplýsingar fyrir sakborninga og aðrar síður nefndar t.d. Handtaka og Málalok, en hvergi er þar þó minnst á að ríkið beri þessa sterku bótaábyrgð gagnvart þeim sem saklausir lenda í aðgerðum lögreglu.

Það er ánægjulegt að löggjafinn hafi tryggt þennan sterka bótarétt í lögum, en á hinn bóginn er dapurlegt að íslenska ríkið hafi gert sáralítið til að upplýsa borgaranna um að þessi bótaréttur sé til.

Lögregla hefur ríkar heimildir til að skerða frelsi fólks og ganga á stjórnarskrárvarin réttindi þess og nú um stundir fara stjórnmálamenn jafnvel fram á enn ríkari heimildir í því sambandi.

Hin hliðin á þeim peningi er að borgararnir eiga tryggðan í lögum bótarétt á hendur ríkinu þegar þeir eru beittir aðgerðum að ósekju. Í réttarríki eiga upplýsingar um slíkt að vera aðgengilegar og skýrar og því vert að skora á framkvæmdavaldið að upplýsa betur um þennan bótarétt á opinberum vettvangi.

Höfundur er lögmaður.




Skoðun

Sjá meira


×