Fótbolti

Kári og félagar töpuðu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Árnason hitar upp fyrir leik með íslenska landsliðinu.
Kári Árnason hitar upp fyrir leik með íslenska landsliðinu. Mynd/E. Stefán

Kári Árnason lék allan leikinn fyrir AGF þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

AGF er í tíunda sæti deildarinnar og einu sæti frá fallsæti. Liðið er þó níu stigum á undan Viborg sem er í ellefta sæti og því nokkuð öruggt um sætið sitt.

OB er í fjórða sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir FCK sem er í öðru sæti. Álaborg er þó með átta stiga forystu á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×