Vijay Singh með tveggja högga forystu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. mars 2008 23:15 Vijay Singh horfir eftir höggi í dag. Nordic Photos / Getty Images
Vijay Singh er með forystu á Arnold Palmer-mótinu í Orlando á Flórída en Tiger Woods er sjö höggum á eftir. Singh og Svíinn Carl Pettersson léku báðir á 65 höggum í dag en Singh er samtals á níu höggum undir pari og Pettersson á sjö höggum undir pari. Lee Westwood frá Englandi og Bandaríkjamennirnir Ken Duke og Jim Furyk koma næstir á sex höggum undir pari. Tiger Woods lék betur í dag heldur en í gær er hann lék á 70 höggum, pari vallarins. Hann lék á tveimur höggum undir pari í dag og er í 20.-28. sæti. Fred Couples var með forystu eftir fyrsta keppnisdag ásamt JJ Henry en gekk illa í dag. Hann lék á 73 höggum og er á tveimur höggum undir pari, rétt eins og Tiger. Henry gekk aðeins betur en hann lék á 70 höggum í dag og er á samtals fimm höggum undir pari ásamt þeim Tom Lehman og Vaughn Taylor í 6.-9. sæti.
Golf Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti Wendell Green rekinn frá Keflavík Körfubolti Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Körfubolti BKG kveður keppinaut: CrossFit á viðkvæmum stað Sport Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Handbolti „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Enski boltinn Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant Körfubolti Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Fótbolti Fleiri fréttir Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira