Mikilvægur sigur hjá Roma í grannaslagnum 16. nóvember 2008 22:04 Þessi skemmtilega mynd af þeim Francesco Totti og Cristian Ledesma sýnir glöggt hve hart menn takast á í Rómarslagnum AFP
Roma vann í kvöld afar þýðingarmikinn sigur á grönnum sínum í Lazio í kvöldleiknum í ítölsku A-deildinni. Roma lyfti sér upp fyrir fallsvæðið með 1-0 sigri þar sem Brasilíumaðurinn Julio Baptista skoraði markið sem skildi liðin að á 50. mínútu. Þetta var 129. grannaslagur þessara erkifjenda í Róm, en þau mættu til leiks á afar ólíkum stað í töflunni. Lazio var í toppbaráttu en Roma í fallbaráttu. Það fór svo að lokum í kvöld að liðið sem þótti ólíklegra til sigurs hirti öll stigin, en sú hefur oftar en ekki verið raunin í þessum hitaslag undanfarin ár. Til marks um það var tveimur leikmönnum vísað af leikvelli í síðari hálfleiknum, þeim Cristian Ledesma hjá Lazio og Simone Perrotta hjá Roma. Roma er aðeins í 17. sæti deildarinnar með 11 stig þrátt fyrir sigurinn, þremur stigum frá fallsvæðinu, en Lazio er í því fimmta með 22 stig.
Ítalski boltinn Mest lesið Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Fótbolti Gary sem stal jólunum Enski boltinn Þakið ætlaði að rifna af Ally Pally eftir níu pílna leik Heta Sport Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Telur daga McGregor í UFC talda Sport Tapaði níu leggjum í röð eftir níu pílna leik og var sendur heim Sport Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Fótbolti „Ég var að skjóta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Ipswich | Saka lausar Skytturnar þurfa svör gegn nýliðunum Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ „Ég var að skjóta“ Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Harmur hrokagikksins Haaland Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Sjá meira