Putin lokar öllum spilavítum í Rússlandi 29. júní 2009 09:44
Það stefnir í stærstu uppsagnabylgju á síðari tímum í Rússlandi á miðvikudag en þá á að loka öllum spilavítum landsins að skipun Vladimir Putin forsætisráðherra. Þessar lokanir eru liður í herferð Putin gegn siðferðisglæpum í Rússlandi. Samkvæmt umfjöllun í The New York Times munu þessar aðgerðir kosta hundruð þúsunda Rússa starf sitt. Putin lagði fram áætlanir sínar í þessu máli árið 2006 er hann var forseti landsins. Putin telur spilaborðin í spilavítunum og spilakassana þar af hinu illa og ræðir um að skuggalegir menn ráði öllu í þessari atvinnugrein. Áætlanir Putin þykja farsakenndar af sumum, að sögn New York Times, því í boði er fyrir eigendur og starfsfólk spilavítanna að flytja starfsemi þeirra til fjögurra mjög afskekktra héraða í Rússlandi. Því mætti í framtíðinni auglýsa „Komdu til Las Vegas í Síberíu" og „Skemmtu þér vel við landamærin að Norður Kóreu". Vandamálið er að þessi fjögur héruð eru alls ekki í stakk búin til að taka við spilavítunum, þ.e. ef eigendur þeirra hafi yfirhöfuð nokkurn áhuga á að flytja þangað. Spilavíti spruttu upp eins og gorkúlur í Rússlandi við fall kommúnismans árið 1991. Þessi starfsemi hefur aukist mikið síðan en nær engin lög eða reglur ná yfir starfsemina. Hver sem er hefur getað opnað spilavíti með því að kaupa leyfi til þess fyrir 7.000 kr. Eigendur spilavítanna hafa ítrekað farið fram á frestun á þessum aðgerðum Putin en tala fyrir daufum eyrum. Bæði Putin og Medvedev forseti Rússlands hafa ekki gefið sig. „Reglunum verður ekki breytt í neinu," sagði Medvedev í síðasta mánuði.
Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira