BIS bankanum blandað inn í japanska skuldabréfasmyglið 10. júlí 2009 16:21
BIS bankanum í Basel í Sviss, eða seðlabanka seðlabankanna í heiminum og síðasta vinnustað næstkomandi seðlabankastjóra á Íslandi hefur nú verið blandað í japanska skuldabréfasmyglið í smábænum Chiasso. Þar voru tveir menn gripnir með 17.000 milljarða kr. í bandarískum skuldabréfum. Tveir fimmtugir Japanir voru nýlega stöðvaðir af ítölsku fjármálalögreglunni, Guardia di Finanza, í járnbrautarlest í bænum Chiasso, smábæ á landamærum Ítalíu og Sviss. Þeir höfðu í fórum sínum bandarísk ríkisskuldabréf sem hafa verið til ítarlegrar rannsóknar en líklegt þykir að skuldabréfin séu fölsuð. Markaðsvirði bréfanna er um 17 þúsund milljarðar króna. Talsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að ríkisskuldabréfin væru fölsuð en nú virðist það ekki vera svo augljóst. Komið hefur í ljós að Japanirnir tveir voru starfsmenn japanska fjármálaráðuneytisins. Að auki er annar mannanna bróðir Toshiro Muto, sem lét úr embætti aðstoðarseðlabankastjóra Japans fyrir skömmu. Samkvæmt heimildum, áttu Japanirnir að flytja ríkisskuldabréfin til Sviss vegna þess að japanska ríkisstjórnin hafði misst trúna á því að ríkisstjórn Bandaríkjanna gæti staðið í skilum við skuldbindingar sínar og þar með staðið í skilum á útgefnum ríkisskuldabréfum sínum. Í Sviss var markmið þeirra að selja hluta af skuldabréfunum en þar í landi hefur ríkt mikil bankaleynd. Önnur kenning sem er á floti samkvæmt frásögn í Asianews er að þessir opinberu starfsmenn hafi verið að smygla skuldabréfunum frá ríkissjóði Japan yfir í BIS bankann. Skýringin er að skuldabréfin hafi átt að létta BIS róðurinn við að mynda nýja ofurmynt í heiminum sem gæti tekið við dollaranum sem helsta gjaldeyrisforðamyntin. Það er mjög erfitt að trúa því að ríkisskuldabréf uppá 134,5 milljarða Bandaríkjadala gætu farið inní fjármálakerfið án þess að nokkur taki eftir því. Til að staðfesta umræddan orðróm ætlaði útvarpsmaður hjá Turner Radio News, sem skoðað hefur málið ofan í kjölinn og upplýst almenning um málavexti, að reyna að uppljóstra raðnúmerum skuldabréfanna. Áður en hann gat gert það var hann handtekinn og færður í fangelsi. Í dramatísku símtali frá fangelsinu lýsti útvarpsmaðurinn því að handtaka hans væri pólitísks eðlis og væri í tengslum við áðurnefnd skuldabréf. Hann hafi hreinlega verið handtekinn vegna ótta yfirvalda við að uppljóstra um uppruna skuldabréfanna. Fullyrt er að handtaka hans hafi ekkert með hugsanlegt sviksamlegt athæfi hans að gera og það gerir málið enn flóknara. Forsögu málsins má sjá í neðangreindum tveimur greinum um málið.
Tengdar fréttir Samsæriskenningar grassera kringum skuldabréfasmygl Að hvaða niðurstöðu kemstu þegar þú blandar saman tveimur japönskum ríkisborgurum með fölsuð bandarísk ríkisskuldabréf, hægfara farþegarlest á leið til Sviss og meðlimum í fjármálalögreglu Ítalíu? 25. júní 2009 09:51 Reyndu að smygla 17.000 milljörðum til Sviss Tveir Japanir voru nýlega gripnir á járnbrautarstöð á landamærum Ítalíu og Sviss með bandarísk ríkisskuldabréf upp á 134 milljarða dollara falin í töskum sínum. Upphæðin nemur 17.000 milljörðum kr. en mennirnir voru á leið til Sviss með töskurnar. 16. júní 2009 16:12 Mest lesið Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Atvinnulíf Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Viðskipti innlent 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Viðskipti innlent Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Fleiri fréttir Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira
Samsæriskenningar grassera kringum skuldabréfasmygl Að hvaða niðurstöðu kemstu þegar þú blandar saman tveimur japönskum ríkisborgurum með fölsuð bandarísk ríkisskuldabréf, hægfara farþegarlest á leið til Sviss og meðlimum í fjármálalögreglu Ítalíu? 25. júní 2009 09:51
Reyndu að smygla 17.000 milljörðum til Sviss Tveir Japanir voru nýlega gripnir á járnbrautarstöð á landamærum Ítalíu og Sviss með bandarísk ríkisskuldabréf upp á 134 milljarða dollara falin í töskum sínum. Upphæðin nemur 17.000 milljörðum kr. en mennirnir voru á leið til Sviss með töskurnar. 16. júní 2009 16:12
15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Viðskipti innlent
15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Viðskipti innlent