Verð á lúxusíbúðum í London hefur hrapað 31. maí 2009 09:38
Verð á lúxusíbúðum í London hefur lækkað um 20% frá því í maí í fyrra að því er segir í frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni. Samkvæmt úttekt frá Knight Frank LLP er niðurskurður í starfsmannahaldi hjá bönkum og fjármálastofnunum ástæðan fyrir þessu hrapi en þetta fólk var aðalkaupendahópurinn að þessum íbúðum fyrir fjármálakreppuna. Talið er að starfsmönnum banka og fjármálastofnanna í borginni umi fækka um 60.000 talsins fram til næsta árs frá hámarkinu sem fjöldinn náði árið 2007. Liam Bailey fasteignasérfræðingur hjá Knight Frank telur þó að botninum á þessum markaði sé náð og að verðin séu á uppleið aftur. Bendir hann á að milli apríl og maí hafi verið á íbúðum sem kosta meir en eina milljón punda hækkað um 1,6%. Er það annað skiptið í röð sem verðið hækkar milli mánaða. Liam reiknar hinsvegar með að verðin nái ekki hámarki sínu að nýju fyrr en árið 2014. Íbúðirnar sem hér um ræðir eru staðsettar í hverfunum Mayfair, St. John's Wood, Regent's Park, Kensington, Notting Hill, Chelsea, Knightsbridge, Belgravia og South Bank. Til samanburðar má geta að fasteignaverð í heild í Bretlandi hefur lækkað um 11% að meðaltali frá því í maí í fyrra.
Mest lesið Arion og Kvika í samrunaviðræður Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira