Fimm tonn af fiski til ESB gætu þurft 1875 vottorð 4. desember 2009 13:50
Norskir útflytjendur standa nú frammi fyrir því að útflutningur á óverulegu magni af fiski getur kallað á gríðarlegt flóð vottorða vegna hertra reglna Evrópusambandsins til þess að stemma stigu við ólöglegum fiskveiðum. Reglugerð þar að lútandi tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi. Eftir breytinguna eru dæmi um að framvísa gæti þurft 1875 upprunavottorðum vegna útflutnings fimm tonna af blönduðum fiski frá Noregi til kaupanda í Þýskalandi.Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ en þetta kemur fram í frétt vefmiðilsins IntraFish í morgun, þar sem rætt er við þá Matthias Keller, framkvæmdastjóra samtaka fiskvinnslustöðva í Þýskalandi og Jurgen Meinert, framkvæmdastjóra samtaka framleiðenda sjávarafurða í Noregi. Meinert segir breytingarnar kalla á „pappírsflóð" og Keller segir það orðið augljóst að ógerningur sé að uppfylla þær kröfur sem ætlað er að ná fram með breytingunum.Þeir setja fram dæmi í fréttinni um kaupanda í Þýskalandi sem kaupir blöndu fimm fisktegunda (þorsk, ýsu, ufsa, karfa og skötusel) af fimm útflytjendum í Noregi - eitt tonn frá hverjum - en þeir aftur kaupa fiskinn frá fimm mismunandi framleiðendum. Til þess að uppfylla öll skilyrði um innflutning til ESB þarf 1875 upprunavottorð (Catch Certificates) með þessum fimm tonnum af fiski.Öll vottorðin þarf að prenta út, stimpla og undirrita áður en skanna þarf þau inn og senda með tölvupósti til kaupandans. Hann þarf síðan að prenta vottorðin 1875 út að nýju, stimpla þau og undirrita áður en hann skannar þau inn aftur og sendir þar til bærum eftirlitsaðila í Þýskalandi með tölvupósti. Þar verða skjölin prentuð út í þriðja sinn, stimpluð og undirrituð.Samkvæmt tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu í dag hafa íslensk stjórnvöld óskað eftir upplýsingum frá framkvæmdastjórn ESB um um hvernig framkvæmd umræddrar reglugerðar ESB, nr. 1005/2008 um varnir gegn ólöglegum veiðum, verður háttað í aðildarríkjum sambandsins.
Mest lesið „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Fleiri fréttir ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira