Ölreikningur til IBM eftir að netþjónabú sló út 14. október 2009 14:14
Rafmagnsleysi hjá einu netþjónabúi IBM í Bröndby í Danmörku í nótt hefur valdið verulegu tekjutapi hjá Carlsberg bruggverksmiðjunum. Ætlar Carlsberg af þessum sökum að krefja IBM um skaðabætur. Netþjónabúið sló út um miðnættið og nú um hádegið voru enn ekki öll tölvukerfin hjá Carlsberg komin í lag. Starfsmenn Carlsberg neyddust í morgun til að afgreiða allar pantanir og keyra starfsemi sína með handafli vegna þessa. Af þeim sökum hefur fjöldi af afhendingum til viðskiptavina Carlsberg tafist og í sumum tilvikum hefur ekki reynst unnt að afgreiða pantanir. Kenneth Egelund Schmidt tölvustjóri Carlsberg segir í samtali við Computerworld að þar sem tölvur keyri allt hjá Carlsberg hafi starfsemin raskast verulega. „Því miður höfum við ekki enn náð að afgreiða vörur til nokkurra viðskiptavina," segir Schmidt. Þegar ljóst varð í morgun að netþjónabúið hafði slegið út og engar tölvur virkuðu hjá Carlsberg var sett í gang sérstök neyðaráætlun meðal starfsmanna bruggverksmiðjanna sem samin hafði verið sérstaklega með þessar kringumstæður í huga. Þessi neyðaráætlun var sett saman í apríl á síðasta ári þegar svipað óhapp hjá IBM lamaði starfsemi margra stórfyrirtækja í Danmörku. Ljóst er að tap Carlsberg liggur ekki hvað síst í því að fyrirtækið þarf að greiða fjölmörgum starfsmönnum sínum yfirvinnu vegna ástandsins. Til dæmis reiknaði Schmidt ekki með að komast í kvöldmatinn heima hjá sér á réttum tíma í kvöld. Fleiri en Carlsberg lentu í vandræðum í morgun vegna þessara vandræða. Til dæmis var ekki hægt að nota greiðslukrot í dönskum verslunum um tíma fyrir hádegið.
Mest lesið „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Viðskipti innlent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Arion og Kvika í samrunaviðræður Viðskipti innlent Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira