Manarbúar fá greitt af reikningum sínum í Kaupþingi 2. febrúar 2009 12:40
Þeir íbúar á eyjunni Mön á Bretlandseyjum sem áttu fé inn á reikningum Singer og Friedlander, banka Kaupþings, munu fá fé sitt endurgreitt upp að vissu marki. Stjórnvöld á eyjunni hafa ákveðið að greiða þessu fólki út innistæður sínar að upphæð allt að 10.000 pundum eða rúmlega 1,6 milljón kr. á hvern reikning. Þetta þýðir að um 40% innistæðueigenda fá endurgreitt á næstu dögum og aðrir síðar. Um leið og þessi ákvörðun lá fyrir var ákveðið að uppskiptin á þrotabúi Singer & Friedlander á Mön myndu fara fram þann 19. febrúar. Samkvæmt frétt um málið í Telegraph gerir ákvörðun stjórnvalda á Mön ráð fyrir að 54% innistæðueigenda fái endurgreitt fé sitt innan þriggja mánaða, 65% innan árs og 71% innan tveggja ára. Þetta er þó háð því hve vel gengur að selja eignir þrotabúsins og hve mikið fæst fyrir þær. Fyrir utan eignirnar kemur fé til endurgreiðslur frá ríkissjóði eyjunnar og bankageira hennar.
Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira